Þann 27.júní var haldið svakaleg golfveisla á vegum Golfdeildar Heimsferða á Hvaleyravelli. Á golfdaginn mættu um 400 manns í blíðskapa veðri og tóku þátt ýmiskonar keppni einsog vippkeppni, Snag golf og púttkeppni. Einnig var boðið uppá frían golfhring á Sveinskotsvelli sem er hentar sérstaklega vel fyrir þá sem eru að taka sín fyrstu skref í íþróttinni
Samhliða fjölskyldudeginum var haldið opið golfmót á Hvaleyravelli þar sem keppnisfyrirkomulag var punktakeppni.
Um kvöldið var heljarinnar tapas veisla af Spænskum sið í golfskála Keilis, fjöldi fólks dreif að og var golfskálinn troðufullur af fólki. Enda til mikils að vinna og snæða.
Hér eru írslit úr mótinu:
Án forgjafar
1.sæti Þórdís Geirsdóttir á 75 höggum
Punktar með forgjöf
1.sæti Birna Ágústsdóttir 40 punktar
2.sæti Hálfdan Kristjánssón 38 punktar
3.sæti Dóra Ingólfsdóttir 38 punktar
4.sæti Mattíhas Waage 37 punktar
5.sæti Bjarki Geir Logason 37 punktar.
6.sæti Hafþór Kristjánsson 37 punktar.
Þeir sem tóku þátt í Golfdeginum á Sveinskotsvelli fóru í pott og áttu möguleika að vinna glæsilega ferðavinninga og einnig gjafabréf frá Fjarðakaup. Þeir sem voru dregnir úr pottinum voru:
Vippkeppnin – Hafdís Erla Bogadóttir
Púttkeppnin – Markús Sveinn Markússon
Snagkeppnin- Róbert 11ára, svo fengu þau Sturla og Halla Salvör snag sett fyrir 7 ára.
Sveinskotsöllur- Sigrún Ragnarsdóttir
Voru þrír dregnir aukalega úr öllum hópnum og hlutu þau gjafakörfu frá Fjarðakaupum þau Ámundi Sigmundsson, Bjarni Þór Gunnlaugsson og Björgvin Sigurðsson.
Voru fjölmargir dregnir út úr pottinum í lok verðlauna afhendingu og var það Eyjólfur Kristjánsson sem tók risavinninginn sem var að andvirði 180.000
Á öllum par 3 holum vallarins voru veitt nándarverðlaun.
4. hola- Ólafur Ingólfsson
6.hola- Birna Ágústsdóttir
10.hola- Bjarki Geir Logason
16. hola- Anna Jódís Sigurbergsdóttir
Þetta var stórglæsilegt mót hjá Heimsferðum og mjög vel heppnað mót í alla staði. Voru allir þáttakendur gífurlega ánægðir og fóru nánast allir með eitthvað heim.