Um helgina fór fram Íslandsmót golfklúbba í Karla og Kvennaflokki. Karlasveitin gerði sér lítið fyrir og sigraði GKG í úrslitaleiknum og er þetta í 14. sinn sem Keilir fagnar sigri í þessari keppni (1971, 1977, 1978, 1988, 1989, 1990, 1991, 1993, 2000, 2008, 2013, 2014, 2016). Benedikt Sveinsson og Henning Darri Þórðarson sigruðu Alfreð Brynjar Kristinsson og Egil Ragnar Gunnarsson í fjórmenningsleiknum 4/1, Axel Bóasson bætti við einum sigri fyrir Keili gegn Aroni Snæ Júlíussyni 5/4 og Gísli Sveinbergsson tryggði sigurinn með 4/3 sigri gegn Ragnari Má Garðarssyni. Tveimur leikjum var þá ekki lokið og sömdu þeir um jafntefli en þar áttu við Birgir Leifur Hafþórsson, GKG – Vikar Jónasson GK, Rúnar Arnórsson GK og Ólafur Björn Loftsson GKG. Mjög svo glæsileg framistaða hjá piltunum og Björgvin Sigurbergssyni þjálfara þeirra. Kvennasveit Keilis gekk ennig mjög vel og fór alla leið í úrslitaleikinn og var leikið gegn feykisterku liði GR. Það fór svo að lið GR hafði sigur í úrslitaleiknum 4 1/2 gegn 1/2. Úrslitaleikurinn var mjög spennandi og óskum við GR til hamingju með sigurinn. Liðin okkar voru þannig skipuð:
Karlasveit Keilis var þannig skipuð:
Andri Páll Ásgeirsson
Axel Bóasson
Rúnar Arnórsson
Gísli Sveinbergsson
Henning Darri Þórðarson
Sigurþór Jónsson
Vikar Jónasson
Benedikt Sveinsson
Liðstjóri: Björgvin Sigurbergsson
Kvennasveit Keilis var þannig skipuð:
Anna Sólveig Snorradóttir
Gunnhildur Kristjánsdóttir
Guðrún Brá Björgvinsdóttir
Helga Kristín Einarsdóttir
Hafdís Alda Jóhannsdóttir
Jódís Bóasdóttir
Signý Arnórsdóttir
Þórdís Geirsdóttir
Liðstjóri: Karl Ómar Karlsson