20. janúar n.k. (bóndadaginn) í Golfskála Keilis. Húsið verður opnað kl. 19:30
Að venju verður boðið upp á hákarl og ískalt brennivín í startið. Borðhald hefst kl. 20:00
Matseðill kvöldsins: Þorramatur, Gunnar Hansson leikari verður blótstjóri og Ingvar Jónsson verður á kantinum með gítarinn. Keilisfélagar eru hvattir til að fjölmenna og taka með sér gesti
Í fyrra var uppselt, aðeins verða seldir 65 miðar
Miðaverð er kr. 5.000
Skráning á pga@keilir.is