Hraunkot hélt sitt árlega áramótapúttmót á gamlársdag. Dagurinn var frábær og tókst mjög vel. 150 manns komu og skráðu sig til leiks, en fyrirkomulagið var þannig að spilaðir voru tveir 18. holu hringir og gildi sá betri. Einnig var haldinn sérstök vippkeppni til styrktar unglingastarfi Keilis og þökkum við þeim sem tóku þátt í henni fyrir þáttökuna. Stöðugur straumur af fólki var allan daginn og myndaðist oft biðröð við 1. teig. Veitt voru verðlaun fyrir sæti 1-3 í púttkeppninni og einnig voru veitt verðlaun fyrir flesta ása, flesta tvista og flesta þrista. Golfklúbburinn Keilir þakkar fyrir skemmtilegan dag og óskar öllum kylfingum farsældar á nýju ári. Helstu úrslit urðu þessi:
Púttkeppni
1. sæti Ólafur Andri Davíðsson f/14 s/12 samtals 26
2. sæti Hilmar Eiríksson f/13 s/13 samtals 26
3. sæti Birgir Vestmar Björnsson f/15 s/12 samtals 27
Aukaverðlaun
Flestir ásar Ólafur Andri Davíðsson
Flestir tvistar Daníel Freyr Ólafsson
Flestir þristar Auður Björt Skúladóttir
Sigurvegarinn í áramótapútti Hraunkots 2013
Biðröð á 1. teig
Það var oft þröngt í kotinu
Það var þétt á teppinu.
Einnig á bílastæðinu