Þjálfunarleiðin 15-16 í golfi hefst þriðjudaginn 10. nóv. 2015
Til að verða betri kylfingur er mikilvægt að æfa reglulega og það er skemmtilegra að gera það í góðra vina hópi.
Þjálfunarleiðin er 15 tímar sem deilist fram á vorið.
Þú kemur því vel undirbúin til leiks næsta sumar og eykur líkurnar að hafa meira gaman í golfi og leikurinn verði betri.
Æfingar verða á þriðjudögum í vetur í Hraunkoti æfingaaðstöðu Golfklúbbsins Keilis í Hafnarfirði.
Æfingar eru í klst. í senn. Hægt er að velja á milli þess að vera kl. 19:00 eða kl. 20:00 á eftirtöldum þriðjudögum í vetur:
– 10., 17., 24. nóvember
– 1., 8., og 15. desember
– 12.,19., 26. janúar
– 2., 9., 16., og 23. febrúar og
– 1. og 8. mars
Það sem er nýtt í golfþjálfunarleiðinni 2015-16 er:
– Fimmtán golfæfingar klst. í senn sem verða til skiptis inni og úti í Hraunkoti í Hafnarfirði
– Púttjólamót milli hópa og einstaklinga í síðasta tíma fyrir jól með glæsilegum vinningum
– Leikur á golfvelli í vor
– Kylfingur fær æfingaáætlun í byrjun hvers mánaðar frá þjálfaratil þess að æfa eftir einu sinni til tvisvar á viku á milli æfinga í fimm mánuði
– Verð er 35.000 kr.- Athugið að boltar eru ekki innifaldir í verði.
Kennarar eru þeir Karl Ómar og Björn Kristinn golfþjálfarar hjá Keili og skiptast hóparnir á að vera inni og úti í vetur.
Skráning er á netfangið bkbgolf@gmail.com
Nánari upplýsingar veitir Kalli á netfangið karl.omar.karlsson@gmail.com
Kveðja,Kalli og Bjössi