Því miður varð að fresta styrktarmóti kvennanefndar Keilis sem halda átti í dag, mótið fer fram mánudaginn 10.08.2015 og gildir skorið í mótaröðinni.
Verð er 2,000 eða frjáls framlög og rennur ágóði móts til barnabarns Ingu Magnúsdóttur sem nýlega greindist með hinn illræmda MS sjúkdóm.
Verðlaunaafhending verður klukkan 22:00 þannig að gert er ráð fyrir að síðasti mögulegi rástími verði klukkan 18:00
Veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjú sætin með forgjöf og nándarverðlaun verða á öllum par 3 holum vallarins. Einnig verða veitt verðlaun fyrir efsta sætið á Sveinskotsvelli. Glæsilegir vinningar eru í boði og dregið verður úr skorkortum.
Hvetjum allar Keiliskonur til að tryggja sér rástíma og slá tvær flugur í einu höggi með því að taka þátt í skemmtilegu móti og styrkja gott málefni í leiðinni.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flestar ….