Skemmtanir

Jónsmessan var haldin 20. júní. Það hefur verið einkennismerki Keilis í gegnum tíðina að halda uppá veglega Jónsmessu ár hvert og mætingin alltaf verið góð hjá félagsmönnum. Í ár vorum við að fagna Jónmessu með golfi í 53. sinn. 96 kylfingar voru skráðir til leiks í þetta skiptið og var stemningin mjög góð.

Því miður var ekki hægt að halda Bændaglímuna að þessu sinni vegna samkomubanns.

Þorrablótið á sér fastan sess í skemmtanalífi okkar Keilismanna, alltaf hefur tekist að fylla á þetta kvöld. Að vanda var blótið haldið á bóndadagin, ekki er útséð hvort við náum að halda það á næsta ári vegna samkomubanns.

Afreksmannahóf Keilis er fastur liður á hverju ári, hófið var haldið að venju í janúar. Afreksfólki Keilis ásamt mökum var boðið til hófsins, einsog með önnur slík boð og samkomur þá er ekki hægt að segja hvort við getum haldið það á eðlilegum tíma nú í ár.